Yömur - Vegvísar af heilræðum

Handbók til meira jafnvægis, innri friðar og meðvitaðra lífs


Hefurðu einhvern tíma fundið að þú sért að gefa meira af þér en þú átt til?

Að dagarnir líði hratt hjá og að þú þráir meiri ró, skýrleika og tengingu við sjálfa/n þig?

Yömurnar eru fyrri hluti af fyrstu tveimur greinum átta anga jóga samkvæmt Yoga Sutrum Patanjalis og hafa í þúsundir ára verið leiðarvísar að meðvitaðra lífi.

Í þessari handbók færðu að kynnast fimm Yömum:

Ahimsa – mildi gagnvart sjálfum sér og öðrum

Satya – að lifa í sannleika

Asteya – að temja sér viðhorf gnægðar og heiðarleika

Brahmacharya – meðvituð nýting orkunnar

Aparigraha – að sleppa tökunum og treysta

Hvað færðu í þessari handbók?

  • 88 blaðsíðna handbók sem þú getur prentað út

  • 11 verkefni til sjálfsvinnu og ígrundunar

  • Tvær vikur tileinkaðar hverri Yömu

  • Hugleiðingar og hagnýtar æfingar

  • Heilræði og ljóð eftir Steinunni Kristínu

  • Stutt myndband þar sem ég kynni bókina og deili með þér hugmyndum um hvernig þú getur unnið með efnið á þinn eigin hátt.

Yömurnar minna okkur á að innra frelsi er ekki áfangastaður.

Það er ferðalag heim til þín.

Fyrir hverja er þessi handbók?

Fyrir þig sem:

Þráir meiri innri frið og jafnvægi

Vilt staldra við og gefa þér tíma til sjálfsskoðunar

✔ Langar að tengja þig betur við þín innri svör

Vilt kynnast Yömunum á einfaldan og hagnýtan hátt

Hefur áhuga á jóga sem lífsstíl, ekki aðeins sem hreyfingu

Langar þig að vita meira?

Skráðu nafn og netfang hér fyrir neðan og ég sendi þér nánari upplýsingar um bókina Yömur – vegvísar af heilræðum, innihald hennar og hvernig hún getur stutt þig á leiðinni að meira jafnvægi, innri friði og frelsi í daglegu lífi.

📖 Engin skuldbinding – aðeins upplýsingar.

Hvernig varð þessi handbók til?

Lífið hefur kennt mér margt og á köflum hef ég sjálf upplifað að tilgangurinn væri fjarlægur og innri róin týnd.

Í gegnum jóga, Yoga Nidra og aðrar mannbætandi leiðir hef ég fundið aftur tengingu við sjálfa mig, meiri mýkt gagnvart lífinu og þann innri frið sem býr undir öllum ys og þys hversdagsins.

Þegar ég fór að vinna með Yömurnar á dýpri hátt áttaði ég mig á því hversu hagnýt og tímalaus þessi viska er. Þær eru ekki aðeins hugmyndir úr fornum ritum heldur leiðarvísar sem geta hjálpað okkur að mæta daglegu lífi af meiri meðvitund, heiðarleika, jafnvægi og trausti.

Þessi handbók varð til út frá þeirri vinnu og því ferðalagi sem ég hef farið sjálf og síðar deilt með þátttakendum á námskeiðum mínum.

Von mín er að hún verði þér stuðningur á þinni eigin vegferð. Að hún hjálpi þér að staldra við, hlusta inn á við og skapa meira rými fyrir það sem raunverulega skiptir máli.

Hvort sem þú þráir meiri innri frið, skýrleika eða dýpri tengingu við sjálfa/n þig, þá geta Yömurnar orðið fallegur leiðarvísir á vegferðinni heim til þín.

Skoða sýnishorn úr bókinni, smelltu á myndina til að sjá hana í fullri stærð!

Til og með 30.júní er bókin á tilboði eða á 3.997,- í stað 6.997,- !

Umsagnir nemenda sem hafa setið námskeið tengt Yömunum!

Höfundaréttur Yoga Nidra Steinunn Kristín 2026 .

Allur réttur áskilinn