Skilmálar og skilyrði Gildistökudagur:
01.04.2025
Þjónustuveitandi:
Yoga Nidra Steinunn Kristín
Tengiliður:
Þessir skilmálar og skilyrði („Samningur“) eiga við um kaup
þín og þátttöku í eftirfarandi tilboði:
“Yömur í daglegu lífi! 12 vikna markþjálfun fyrir innri styrk og ró”
Með því að skrá þig í þessa vegferð samþykkir þú að fylgja þessum skilmálum og skilyrðum.
1. Veitt þjónusta Vegferðin inniheldur :
12 vikna einstaklingsmiðað prógramm þar sem aðra hverja viku er tekin fyrir ein Yama.
1-1 fundur á Zoom aðra hverja viku(45 mín) þar sem farið er í markþjálfun og úrvinnslu tengda Yama-viðfangsefni hverju sinni.
Heimaverkefni tengd hverri Yömu til að hjálpa þér að innleiða nýjar venjur og viðhorf.
Stutt hugleiðsluæfing fyrir hverja yömu til að dýpka vinnuna.
Aðgangur af lesefni og hugleiðslum á lokuðum vef á meðan á þessum 12 vikum stendur.
Samskipti við leiðbeinanda í gegnum tölvupóst á meðan á vegferðinni stendur eða í 12.vikur.
Aðgangur að efninu í 6.vikur eftir að vegferð líkur.
Nánari upplýsingar eru tilgreindar á söluvefnum sem þú keyptir frá.
2. Greiðsluskilmálar
Heildarverð Vegferðarinnar er á tilboðsverði 87.000,- Isk +248,- Isk greiðslugjald, sem skal greiðast:
Að fullu við skráningu í gegnum Konto greiðslumiðlun.
Sé óskað eftir að skipta greiðslum í þrennt 29.000,- Isk +248,- Isk greiðslugjald þá vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected]
Kaupandi skuldbindur sig til að greiða vöru og þjónustu að fullu við kaup. Komi til greiðslufalls áskilur Yoga Nidra Steinunn Kristín og Steinunn Kristín Hafsteinsdóttir sér rétt til þess að sækja greiðsluna með lögboðnum leiðum. Þegar þú hefur gengið frá skráningu, námskeiðskaupum eða öðrum kaupum hjá Yoga Nidra Steinunn Kristín í gegnum vefinn, hefur þú 14 daga til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga.
Ef viðburður sá sem keyptur er hefst innan 14 daga frá skráningu og kaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að nýta greiðsluna fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.
Ef viðburður fellur niður, er skráðum þátttakendum boðið að færa skráningu á sambærileg námskeið, eiga inneign eða fá fulla endurgreiðslu. Ekki er heimilt að áframselja skráningu, námskeiðs- eða önnur viðburðakaup af Yoga Nidra Steinunn Kristín með fjárhagslegum hagnaði og áskilur Yoga Nidra Steinunn Kristín sér full réttindi til ógildingar slíkra viðskipta .
3. Engin endurgreiðslu- eða afbókunarstefna
Vegna stafræns eðlis vegferðarinnar og tafarlauss aðgangs efnis ( eftir að umsaminn upphafsdagur hefst) þá veiti ég ekki endurgreiðslur eða afbókanir. Með kaupum staðfestir þú þessa stefnu og samþykkir að hefja ekki bakfærslubeiðnir eða greiðsludeilur.
4. Endurbókun og fjarvera (fyrir 1:1 þjónustu)
Ef við á getur þú endurbókað 1:1 tíma með að lágmarki 24 klst. fyrirvara. Tímar sem ekki eru nýttir án fyrirvara tapast. Ef ég þarf að endurbóka mun ég láta vita eins fljótt og auðið er og bjóða annan tíma.
5. Ábyrgðarleysi varðandi árangur
Ég gef engar tryggingar um ákveðinn árangur. Niðurstöður þínar ráðast af mörgum þáttum, þar á meðal þinni eigin vinnu, bakgrunni og aðstæðum. Vegferðin er eingöngu fræðsluefni og kemur ekki í stað lögfræðilegrar, læknisfræðilegrar, sálfræðilegrar eða fjármálaráðgjafar.
6. Allur réttur áskilinn
Allt efni vegferðarinna, þar á meðal myndbönd, vinnublöð, glærur og önnur gögn, er verndað af höfundarrétti.
Þú færð persónulegt, óframseljanlegt leyfi til að nota efnið í þinni eigin þekkingarleit. Þér er óheimilt að deila, afrita, dreifa eða selja neitt efni án skriflegs leyfis.
7. Trúnaður
Ég virði friðhelgi þína og mun halda öllum persónulegum upplýsingum sem deilt er í tímum trúnaðarmálum, nema lög krefjist birtingar.
Fyrir frekari upplýsingar um meðferð gagna skaltu skoða persónuverndarstefnu.
8. Tæknilegar kröfur
Þér ber að tryggja að þú hafir nauðsynlegan tæknibúnað til að fá aðgang að Vegferðinni, þar með talið stöðuga nettengingu og nauðsynleg forrit eða vefvafra (t.d. Zoom).
9. Samningur
Þessi samningur verður bindandi um leið og kaup þín eru staðfest, hvort sem er með fullri eða hlutagreiðslu.
10. Viðskipta- eða neytendakaup
Ef þú kaupir sem viðskiptavinur viðurkennir þú að lög um neytendavernd kunna að eiga takmarkaða við. Ef þú kaupir sem neytandi gætir þú átt viðbótar réttindi samkvæmt lögum í þínu landi. Þú staðfestir að í kaupferlinu hafi verið skýrt tekið fram hvort tilboðið væri ætlað fyrirtækjum eða neytendum.
11. Hafðu samband Fyrir spurningar um þessa skilmála og skilyrði, vinsamlega hafðu samband við: Yoga Nidra Steinunni Kristín, Steinunn Kristín [email protected]