Skilmálar og skilyrði Gildistökudagur:

28.11.2025

Þjónustuveitandi:

Yoga Nidra Steinunn Kristín

Tengiliður:

[email protected]

Þessir skilmálar og skilyrði („Samningur“) eiga við um kaup
þín og þátttöku í eftirfarandi tilboði:

,,Ferðalag um orkustöðvarnar” 8 fyrirlestrar og hugleiðslur


Með því að skrá þig í þessa áskrift samþykkir þú að fylgja þessum skilmálum og skilyrðum.

1. Aðgangur að einum fyrirlestri og eini hugleiðslu á viku í átta vikur, ársaðgangur af öllum efninu að 8 vikum loknum, samtals 421 dagur í áskrift.

Nánari upplýsingar eru tilgreindar á söluvefnum sem þú keyptir frá.

2. Greiðsluskilmálar

Heildarverð áskrifarinna er 19.900,- hafi verið keypt fyrir miðnætti 01.12.2025 er verðið 15.900,- sem skal greiðast að fullu við skráningu í gegnum Konto greiðslumiðlun.

Kaupandi skuldbindur sig til að greiða vöru og þjónustu að fullu við kaup. Komi til greiðslufalls áskilur Yoga Nidra Steinunn Kristín og Steinunn Kristín Hafsteinsdóttir sér rétt til þess að sækja greiðsluna með lögboðnum leiðum. Þegar þú hefur gengið frá skráningu, námskeiðskaupum eða öðrum kaupum hjá Yoga Nidra Steinunn Kristín í gegnum vefinn, hefur þú 14 daga til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga.

Ef viðburður sá sem keyptur er hefst innan 14 daga frá skráningu og kaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að nýta greiðsluna fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.

Ef viðburður fellur niður, er skráðum þátttakendum boðið að færa skráningu á sambærileg námskeið, eiga inneign eða fá fulla endurgreiðslu. Ekki er heimilt að áframselja skráningu, námskeiðs- eða önnur viðburðakaup af Yoga Nidra Steinunn Kristín með fjárhagslegum hagnaði og áskilur Yoga Nidra Steinunn Kristín sér full réttindi til ógildingar slíkra viðskipta .

3. Engin endurgreiðslu- eða afbókunarstefna

Vegna stafræns eðlis vegferðarinnar og tafarlauss aðgangs efnis ( eftir að umsaminn upphafsdagur hefst) þá veiti ég ekki endurgreiðslur eða afbókanir. Með kaupum staðfestir þú þessa stefnu og samþykkir að hefja ekki bakfærslubeiðnir eða greiðsludeilur.

4. Ábyrgðarleysi varðandi árangur

Ég gef engar tryggingar um ákveðinn árangur. Niðurstöður þínar ráðast af mörgum þáttum, þar á meðal þinni eigin vinnu, bakgrunni og aðstæðum. Áskriftin er eingöngu fræðsluefni og kemur ekki í stað lögfræðilegrar, læknisfræðilegrar, sálfræðilegrar eða fjármálaráðgjafar.

5. Allur réttur áskilinn

Allt efni áskriftarinnar, þar á meðal myndbönd, vinnublöð, glærur og önnur gögn, er verndað af höfundarrétti.

Þú færð persónulegt, óframseljanlegt leyfi til að nota efnið í þinni eigin þekkingarleit. Þér er óheimilt að deila, afrita, dreifa eða selja neitt efni án skriflegs leyfis.

6. Trúnaður

Ég virði friðhelgi þína og mun halda öllum persónulegum upplýsingum sem deilt er í tímum trúnaðarmálum, nema lög krefjist birtingar.

Fyrir frekari upplýsingar um meðferð gagna skaltu skoða persónuverndarstefnu.  

7. Tæknilegar kröfur

Þér ber að tryggja að þú hafir nauðsynlegan tæknibúnað til að fá aðgang að áskriftinni, þar með talið stöðuga nettengingu .

8. Samningur

Þessi samningur verður bindandi um leið og kaup þín eru staðfest með greiðslu.

9. Viðskipta- eða neytendakaup

Ef þú kaupir sem viðskiptavinur viðurkennir þú að lög um neytendavernd kunna að eiga takmarkaða við. Ef þú kaupir sem neytandi gætir þú átt viðbótar réttindi samkvæmt lögum í þínu landi. Þú staðfestir að í kaupferlinu hafi verið skýrt tekið fram hvort tilboðið væri ætlað fyrirtækjum eða neytendum.

10. Hafðu samband Fyrir spurningar um þessa skilmála og skilyrði, vinsamlega hafðu samband við: Yoga Nidra Steinunni Kristín, Steinunn Kristín [email protected]